Vel heppnað málþing um skólaforðun í Norræna húsinu

Í síðustu viku, miðvikudaginn 18. nóvember, stóðu Einhverfusamtökin fyrir vel heppnuðu málþingi um skólaforðun í Norræna húsinu. Á dagskrá voru sýning stuttmyndarinnar Unauthorised Absence, erindi og pallborðsumræður um málefni sem liggur mörgum nærri.

Aðeins 11 dagar liðu frá því að leyfi fékkst til að sýna myndina þar til málþingið fór fram. Það þarf margt að ganga upp á svo skömmum tíma og við erum þakklát öllum sem lögðu sitt af mörkum. Norræna húsinu þökkum við sérstaklega fyrir aðstöðuna.

Einnig færum við Salvöru Nordal, umboðsmanni barna og Ásdísi Bergþórsdóttur, sálfræðingi, Söru Rós Kristinsdóttur, eiganda Lífsstefnu og eina af þáttastjórnendum hlaðvarpsins 4. vaktarinnar, og Steingerði Lóu Gunnarsdóttur kærar þakkir fyrir framlag þeirra og þátttöku í pallborðsumræðunum. Þóru Björg Jónsdóttur lögfræðing og eiganda STOKKU samvinnustofu þökkum við einnig kærlega fyrir að hoppa til og taka að sér fundarstjórn.

Upptöku af erindum og pallborðsumræðum málþingsins má sjá hér:
https://vimeo.com/1247978147/fdb8827133

Unauthorised Absence fjallar um móður og dóttur sem leita eftir stuðningi og skilningi þegar skólasókn veldur barninu mikilli vanlíðan. Við þökkum Natalie Lauren, framleiðanda myndarinnar, og Jo Clayton, handritshöfundi hennar, fyrir að segja þessa sögu og veita innsýn í veruleika sem margar fjölskyldur þekkja.

Myndin er öllum opin á YouTube. Hún getur vakið sterkar tilfinningar, sérstaklega hjá þeim sem þekkja þessar aðstæður af eigin raun. Hafið það í huga áður en þið horfið og gefið ykkur svigrúm til að taka hlé.

Við vonum að myndin auki skilning á aðstæðum barna og fjölskyldna þeirra og hvetjum ykkur til að deila henni áfram.

Hér má horfa á stuttmyndina:
https://www.youtube.com/watch?v=dn8C7WuGv8g