Félagslíf fyrir einhverf ungmenni og fullorðna á höfuðborgarsvæðinu

Hugsuðir - unglingahópur

Í febrúar 2009 var farið af stað með unglingahóp á vegum Einhverfusamtakanna. Hópurinn er hugsaður fyrir ungmenni á einhverfurófi á aldrinum 12-20 ára. Markmiðið er að efla virkni þeirra, kynna þau fyrir öðrum unglingum í svipuðum sporum og bjóða upp á tækifæri til að gera það sem jafnaldrar þeirra eru að fást við í sínum frítíma.

Hópurinn hittist annan hvern fimmtudag yfir vetrarmánuðina, milli kl. 17:30 og 19:30 í Félagsmiðstöðinni Þróttheimum.  Áhersla er lögð á félagsleg samskipti í því formi að hafa gaman, taka þátt í tilboðum í samfélaginu ásamt ýmisskonar samveru. Sem dæmi hefur verið farið í keilu, út að borða, gönguferðir og tekist á við ýmsar þrautir úti og inni.  

Það er ekki skyldumæting í alla tíma Hugsuðanna og tölvupóstur er sendur með viku fyrirvara um hvað verður gert í næsta skipti sem hópurinn hittist – þannig að þeir Hugsuðir sem hafa ekki gaman af því að fara í bíó, svo dæmi sé tekið, þurfa ekki að mæta í það skiptið.

Að öllu jöfnu eru umsjónarmenn hópsins fimm og þeir hafa sérþekkingu á einhverfurófsröskunum.

Konur á einhverfurófi

Undanfarin ár hafa Einhverfusamtökin staðið fyrir reglulegum fundum fyrir konur á einhverfurófi þar sem þær hittast og ræða saman.  Fundirnir eru fyrir konur sem staðsetja sig á einhverfurófinu, óháð greiningu. Umræðuefnin sem koma upp á fundum eru afar mismunandi en það sem mest hefur verið rætt um tengist gjarna einhverfugreiningunni, sem því miður virðist hafa komið ansi seint hjá mörgum, sem þá hafa þurft að glíma árum saman við ýmis  vandamál, sem fylgja því að vera á  einhverfurófinu. Einnig hefur mikið verið rætt um áhugamál, atvinnuþátttöku, almenna líðan, kvíða og þunglyndi. 

Hópurinn hittist mánaðarlega yfir vetrarmánuðina undir handleiðslu einhverfuráðgjafa.

Fundirnir eru haldnir annan þriðjudag í mánuði kl. 20:00 til 22:00, Háaleitisbraut 13, 2. hæð. 

Nánari upplýsingar um hópinn veita Laufey Gunnarsdóttir á netfanginu laufeyg@gmail.com og Sigrún Birgisdóttir á netfanginu sigrun@einhverfa.is.

Einhverfukaffi í Bókasafni Hafnarfjarðar

Einhverfukaffi haldið í sal í Bókasafni Hafnarfjarðar. Um er að ræða samverustund á forsendum einhverfra og er hún opin öllum sem tengja við einhverfurófið. Umsjón samverunnar er í höndum Guðlaugar Svölu Kristjánsdóttur. 

Sjá nánar á fb-síðu Einhverfukaffisins: https://www.facebook.com/profile.php?id=100076542061654

Einhugar - Einhverfuhittingar í HÍ 

Mánaðarlegir hittingar fyrir námsmenn, hugsað sem jafningjastuðningur. sjá nánar á facebook síðunni: https://www.facebook.com/groups/686192646533546

Handavinnuhittingar fyrir 18 ára og eldri á einhverfurófinu

Haldið á Háaleitisbraut 13, á 1. hæð í matsalnum, annan laugardag hvers mánaðar kl. 14:30-16:30. Umsjón með hittingunum hefur Ragnheiður Ösp Sig. Samverustund á forsendum einhverfra, hver og einn mætir með sína handavinnu að eigin vali.

Borðspilahittingur fyrir 18 ára og eldri á einhverfurófinu

Haldið á Háaleitisbraut 13, á 1. hæð í matsalnum, fyrsta sunnudag hvers mánaðar kl. 14:00-17:00. Spiluð eru ýmiss konar borðspil.
Ef þið eigið spil heima sem þið viljið spila, þá má koma með, miðum kannski við eitt til tvö spil sem hver kemur með. Engin skylda er þó að koma með spil. Höfum gaman saman, njótum samverustundarinnar og munum að þetta er bara leikur.

Nánari upplýsingar um hópana veitir Sigrún Birgisdóttir í síma 897-2682 og á netfanginu einhverfa@einhverfa.is.