Á aðalfundi Einhverfusamtakanna 2026 voru samþykktar tvær ályktanir sem varða stöðu einhverfra barna í skólakerfinu.
Annars vegar fjallar ályktunin um skólasóknarvanda, einnig nefnt skólahöfnun, og þá alvarlegu stöðu sem getur skapast þegar börn fá ekki viðeigandi stuðning, aðlögun og skilyrði til að geta sótt skóla.
Hins vegar fjallar hin ályktunin um skort á sérhæfðum skólaúrræðum fyrir einhverf börn, meðal annars þá staðreynd að börnum sem uppfylla skilyrði fyrir sérhæfð úrræði er ítrekað synjað vegna plássleysis.
Ályktun um skólasóknarvanda og skólaforðun
Aðalfundur Einhverfusamtakanna samþykkti ályktun um stöðu einhverfra barna sem eiga í alvarlegum erfiðleikum með skólasókn. Í ályktuninni er vakin athygli á því að börn í skólasóknarvanda og fjölskyldur þeirra mæta of oft skilningsleysi, úrræðaleysi og óskýrri ábyrgð milli kerfa.
Einhverfusamtökin leggja áherslu á að skólasóknarvandi verði ekki leystur með þrýstingi á barnið eða fjölskylduna, heldur þurfi að greina hvað í skólaumhverfinu veldur vanlíðan, álagi eða óöryggi og bregðast við með raunhæfum aðlögunum og viðeigandi stuðningi.
Samtökin kalla eftir skýrari ábyrgð stjórnvalda, aukinni þekkingu innan skólakerfisins og tryggingu þess að einhverf börn fái raunveruleg skilyrði til náms, þroska og þátttöku.
Ályktun um sérhæfð skólaúrræði fyrir einhverf börn
Aðalfundur Einhverfusamtakanna samþykkti einnig ályktun um alvarlegan skort á sérhæfðum skólaúrræðum fyrir einhverf börn. Í ályktuninni er vakin athygli á því að ár eftir ár er fjölda einhverfra barna synjað um skólavist í sérhæfðum einhverfudeildum vegna plássleysis, þrátt fyrir að þau uppfylli skilyrði fyrir úrræðinu og hafi verið metin í þörf fyrir það.
Samtökin benda á að þegar barni er synjað vegna skorts á plássum er ekki verið að hafna þörf barnsins. Synjunin sýnir fyrst og fremst að kerfið hefur ekki byggt upp nægileg úrræði til að mæta þörfinni. Slík staða getur haft alvarleg áhrif á skólagöngu, líðan og rétt barnsins til náms við hæfi.
Einhverfusamtökin kalla eftir því að Reykjavíkurborg og önnur sveitarfélög tryggi næg sérhæfð skólaúrræði, faglega mönnun og raunverulegt fjármagn svo einhverf börn fái þann stuðning sem þau þurfa.
Þar sem stutt er í sveitarstjórnarkosningar hvetja Einhverfusamtökin alla kjósendur til að krefja oddvita og aðra frambjóðendur um skýr svör vegna stöðu einhverfra barna í skólakerfinu. Sveitarfélög bera ábyrgð á grunnskólamálum og því eiga kjósendur rétt á að vita hvernig frambjóðendur hyggjast tryggja viðeigandi stuðning, raunhæfar aðlaganir og næg sérhæfð skólaúrræði fyrir þau börn sem þurfa á þeim að halda.
Smelltu hér til að sækja ályktun um skólasóknarvanda og skólaforðun
Smelltu hér til að sækja ályktun um sérhæfð skólaúrræði fyrir einhverf börn