TAKK dagurinn - Kærkominn liðsauki frá Fossum fjárfestingarbanka

Í október síðastliðnum þurftum við að tilkynna að Hugsuðir gætu ekki hafið vetrarstarfið vegna fjárskorts. Við leituðum til samfélagsins eftir hjálp.

Kallinu var svo sannarlega svarað úr óvæntri átt. Fossar fjárfestingarbanki hefur valið Einhverfusamtökin sem styrkþega TAKK dagsins í ár og við erum ótrúlega þakklát fyrir þennan kærkomna liðsauka!

Við færum Fossum og öllu starfsfólki þeirra okkar innilegustu þakkir fyrir þetta frábæra frumkvæði og þann mikla kraft sem þau leggja í TAKK daginn. Það skiptir samtök eins og okkar gríðarlega miklu máli að finna þennan meðbyr og sjá svo marga taka höndum saman fyrir fólkið okkar. ❤️

TAKK dagurinn fer fram fimmtudaginn 26. nóvember. Á deginum renna allar þóknanatekjur Fossa til Einhverfusamtakanna, auk frjálsra framlaga viðskiptavina og velunnara. Samstarfsaðilar Fossa, Nasdaq og T Plús, fella niður öll gjöld af viðskiptum dagsins og láta þau renna til söfnunarinnar.

Öllum sem leggja deginum lið færum við einlægar þakkir.

Þið hjálpið okkur að hefja starf Hugsuða aftur og byggja upp mikilvægt og fjölbreytt félagsstarf fyrir einhverft fólk. Stuðningurinn gefur okkur kraft til að halda áfram og tækifæri til að gera enn meira.

Við hlökkum svo til að sjá Hugsuðina hittast aftur. Við vitum að þau hlakka ekki síður til!

Takk, elsku TAKK-fólk! ❤️

Hér má lesa nýbirta grein um mikilvægi Hugsuðanna og þess að fá að tilheyra:

https://www.visir.is/g/20262968034d/oll-born-eiga-skilid-ad-tilheyra-mikilvaegi-hugsudanna