Sumarnámskeið fyrir unglinga

Umsjónarfélag einhverfra ætlar að halda þrjú sumarnámskeið fyrir unglinga í júní og júlí. Verða þau með svipuðum hætti og í fyrrasumar. Er þetta samstarfsverkefni Soroptimistafélags Reykjavíkur og Umsjónarfélags einhverfra.
Skráning á sumarnámskeiðin hefst 20. apríl.
Skráningin verður opin til 6. maí. Við hvetjum ykkur til að skrá sem fyrst og tilgreina sem best það sem spurt er um í skráningarforminu. Ef eitthvað er óljóst, þá skuluð senda tölvupóst á netfangið einhverf@vortex.is eða hringja i Sigrúnu í síma 8972682.
Nánari upplýsingar á http://minnstyrkur.wordpress.com