Styrktartónleikar Caritas

Caritas á Íslandi efnir til Styrktartónleika í þágu fólks með einhverfu, í Kristskirkju við Landakot, sunnudaginn 18. nóvember kl. 16.

Dagskráin er einkar glæsileg í flutningi úrvals einsöngvara, kóra og hljóðfæraleikara og gefa allir vinnu sína. Forsala aðgöngumiða er í Pennanum Eymundsson í Austurstræti, Kringlunni og Smáralind, skrifstofu kaþólsku kirkjunnar Hávallagötu 14-16 og á Sjónarhóli, Háaleitisbraut 13. Miðasala verður einnig við innganginn.

Miðaverð 2.500 kr. Allur ágóði tónleikanna mun renna til Umsjónarfélags einhverfra.

Flytjendur: Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, mezzosópran, Bergþór Pálsson,bariton, Bragi Bergþórsson, tenor, Guðný Guðmundsdóttir, fiðla, Gunnar Kvaran, selló, Eiríkur Örn Pálsson, trompet, Úlrik Ólason, orgel

Hamrahlíðarkórinn, stjórnandi Þorgerður Ingólfsdóttir Stúlknakór Reykjavíkur, stjórnandi Margrét J. Pálmadóttir
Á efniskrá eru m.a. verk eftir: Árna Thorsteinsson, Bach, Bizel, Clarke, Händel, Hróðmar Inga Sigurbjörnsson,Mozart, Rachmaninoff og Schubert.