Einhverfusamtökin hafa gerst aðilar að Hidden Disabilities Sunflower, alþjóðlegu verkefni sem hefur það að markmiði að auka sýnileika, skilning og stuðning við fólk með ósýnilegar fatlanir, sjúkdóma og skerðingar.
Sólblómabandið er grænt band með gulum sólblómum sem er ætlað fólki með ósýnilegar fatlanir, öðruvísi taugaþroska, sjúkdóma eða skerðingar.
Sá sem ber bandið gefur á látlausan hátt til kynna að hann kunni að þurfa aukinn skilning, aðstoð, þolinmæði eða sveigjanleika, til dæmis í samgöngum, á fjölförnum stöðum, í vinnu eða verslunum.
Bandið getur stuðlað að auknum skilningi og tillitssemi í umhverfinu án þess að sá sem ber það þurfi að útskýra fötlun sína, sjúkdóm eða greiningu.
Notkun Sólblómabandsins er valfrjáls og hver og einn ákveður hvort og hvenær hann notar það.
Sólblómabandið er hvorki opinbert vottorð um fötlun né veitir það sjálfkrafa forgang í biðröðum, sérstök réttindi eða undanþágur.
Tilgangur þess er fyrst og fremst að stuðla að auknum skilningi, tillitssemi og viðeigandi aðstoð þegar hennar er þörf.
Félagsmenn Einhverfusamtakanna
Skuldlausir félagsmenn Einhverfusamtakanna geta nálgast Sólblómaband með upplýsingakorti sér að kostnaðarlausu á skrifstofu samtakanna að Suðurlandsbraut 18, 3. hæð, Reykjavík.
Ekki félagsmaður?
Sólblómabandið er einnig hægt að nálgast hjá öðrum félagasamtökum, meðal annars Einstökum börnum og Umhyggju, samkvæmt skilyrðum viðkomandi félaga.
Einnig er hægt að nálgast Sólblómabandið á Keflavíkurflugvelli og fleiri flugvöllum landsins án endurgjalds. Hafa ber þó í huga að böndin geta tímabundið klárast, sérstaklega á álagstímum.
Nánari upplýsingar má finna á vef Hidden Disabilities Sunflower.