Skíðanámskeið í Hlíðarfjalli

Skíðanámskeið í Hlíðarfjalli 15. – 17. febrúar 2013

Námskeiðið er byggt upp fyrir tvo markhópa;

1.Einstaklinga með þroskahamlanir og/eða röskun á einhverfurófi.

2.Leiðbeinendur, skíðakennara og aðra sem áhuga hafa á skíðaiðkun fatlaðra

Dagskrá:               

Föstudagur 15. febrúar, klukkan 18 – 21:30.

Fyrirlestur um helstu atriði sem þarf að hafa í huga þegar fólki með þroskahamlanir og fólki á einhverfurófi

kemt á skíði.

Laugardagur 16. febrúar,        9:30 – 16:00            

Sunnudagur 17. febrúar,         9:30 – 16:00 

Þáttakendur á leiðbeinendanámskeiði aðstoða við kennslu fatlaðra þátttenda

 

Allir sem áhuga hafa geta komist á skíði og er fatlað fólk ekki undanskilið. Ef réttur búnaður og aðstoð er til staðar geta allir verið með.  Skíðaiðkun er afþreying, styrkir sál og líkama ogsem hentar allri fjölskyldunni. Það er því með stolti sem Vetraríþróttamiðstöð Íslandsog Íþróttasamband fatlaðra í samstarfi við Hlíðarfjall og  NSCD, Winter Park Colorado  bjóðaupp á  skíðanámskeið fyrir einstaklinga með þroskahamlanir og/eða röskun á einhverfurófi. 

Námskeiðið er fyrir byrjendur og lengra komna.  Sérstök áhersla er einnig á kennslu fyrir leiðbeinendur og aðra sem vilja læra að aðstoða fatlað skíðafólk.

Aðal leiðbeinandi námskeiðsins Beth Fox, hefur kennt fötluðu fólki á skíði síðastliðin 25 ár. Hún er framkvæmdastjóri National Sports Center for the Disabled (NSCD) sem sérhæfir sig í útivist fatlaðs fólks.         Vanir Íslenskir leiðbeinendur verða henni til aðstoðar.

Þátttökugjald: 15.000.- Innifalið í námskeiðsgjaldi er skíðakort fyrir helgina ásamt súpu í hádeginu á laugardag og sunnudag.   Þátttakendur á leiðbeinendanámskeiði greiða ekki þátttökugjald en leggja fram aðstoð og taka þátt í að leiðbeina fötluðum þátttakendum.

Staðfesta skal skráningar á netfang;  annak@isisport.is  fyrir 8. febrúar.  Takmarkaður fjöldi.

Skrá þarf helstu upplýsingar um fatlaða þátttakendur og gefa upp símanúmer  og netfang.

Námskeið fyrir leiðbeinendur er fyrir þá sem sem vilja kynna sér þjálfun og skíðakennslu fatlaðra.

 

Annað skíðanámskeið  fyrir fatlaða einstaklinga verður 8. – 10. mars, nánar auglýst síðar