Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka fer fram laugardaginn 22. ágúst.

Hlauptu með Einhverfusamtökunum í Reykjavíkurmaraþoninu!

Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka fer fram laugardaginn 22. ágúst 2026 og Einhverfusamtökin verða að sjálfsögðu með!

Viltu hlaupa með okkur?

Hægt er að hlaupa fyrir Einhverfusamtökin og safna áheitum til styrktar starfi samtakanna.

Til í að vera með? Skráðu þig í Reykjavíkurmaraþonið hér!

Þegar þú hefur skráð þig í hlaupið geturðu stofnað áheitasíðu og valið Einhverfusamtökin sem góðgerðarfélag.

Ekki að hlaupa en langar að styrkja? Þá geturðu heitið á einhvern af hlaupurunum okkar. Sjá hlauparana okkar og heita á hér.

Með því að hlaupa fyrir Einhverfusamtökin eða heita á hlaupara styður þú starf samtakanna í þágu einhverfs fólks og aðstandenda þess. Við erum ótrúlega þakklát fyrir stuðninginn! ❤️

Bolir fyrir hlauparana okkar

Þau sem hlaupa fyrir Einhverfusamtökin geta komið á skrifstofu samtakanna í ágúst og fengið hlaupabol að gjöf. Fyrir þau sem búa utan höfuðborgarsvæðisins er ekkert mál að senda bolinn út á land.

Ekki hlaupatýpa? Ekkert mál!

Það þarf nefnilega ekki að hlaupa til að vera hluti af Reykjavíkurmaraþoninu. Við þurfum líka fólk sem er tilbúið að standa á hliðarlínunni og gera smá læti!

Hvatningarstöð Einhverfusamtakanna verður fyrir framan Geirsgötu 9 og þar ætlum við að klappa, kalla, hvetja og sjá til þess að hlaupararnir okkar fái almennilegan aukakraft á lokasprettinum.

Taktu fjölskylduna, vini eða aðra félaga með og vertu með okkur. Dansspor, skilti, köll og almennt stuð eru sérstaklega vel þegin.

Rás- og marksvæði

Ræst verður frá Sæmundargötu við Háskóla Íslands og hlaupið í mark á Geirsgötu við Kolaportið.

Dagskrá hlaupadags

Tími

Dagskrá

07:00

Upplýsingamiðstöð opnar

07:00

Töskugeymsla opnar

08:15

Keppnisflokkur í maraþoni og hálfmaraþoni – ræsing

08:45

Almennur flokkur í maraþoni og hálfmaraþoni – ræsing

09:30

Keppnisflokkur í 10 km – ræsing

10:00

Almennur flokkur í 10 km og skemmtiganga í 10 km – ræsing

11:30

Upphitun í skemmtiskokki hefst

12:00

Skemmtiskokk – ræsing

Dagskrá er birt með fyrirvara um breytingar.