Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka 19. ágúst

Nú styttist í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka 2017 sem fer fram þann 19. ágúst.  
Einhverfusamtökin eru meðal fjölmargra félagsamtaka sem þátttakendur í Reykjavíkurmaraþoni geta hlaupið fyrir og um leið vakið athygli á málstaðnum. Áheitasöfnun fer fram á vefnum https://www.hlaupastyrkur.is/godgerdafelog/charity/249/einhverfusamtokin
 
Um leið og við hvetjum sem flesta til að taka þátt í Reykjavíkurmaraþoninu, minnum við á áheitasöfnun því samfara. Við verðum með boli með merki samtakanna á skrifstofu Einhverfusamtakanna 15.-18. ágúst sem hlauparar geta fengið gefins. Þessir bolir eru úr Dri-Fit efni og góðir í hlaup og ræktina.
 
Þessi söfnun áheita er stærsta fjáröflun Einhverfusamtakanna og því mikilvæg fyrir starfsemina.
Það er einfalt fyrir hlaupara að stofna aðgang á hlaupastyrkur.is og safna áheitum. Byrja þarf á því að skrá sig í hlaupið á marathon.is. Í skráningarferlinu er hægt að velja eitt af skráðum góðgerðafélögum en Einhverfusamtökin eru eitt þeirra, og stofnast þá viðkomandi sjálfkrafa á hlaupastyrkur.is að skráningu lokinni. Einnig geta skráðir hlauparar farið inn á hlaupastyrkur.is og stofnað aðgang í örfáum einföldum skrefum.
 
Hægt er að deila söfnunarsíðu hlaupara á samfélagsmiðlum og hvetja þannig vini og vandamenn til að heita á sig. Hver sem er getur farið inná hlaupastyrkur.is og heitið á skráða hlaupara.
 
Við vonum að fólk njóti dagsins í maraþoninu, og ekki síður kvöldsins og allra þeirra viðburða sem eru í boði um bæinn.