Einhverfusamtökin taka þátt í áheitasöfnun Reykjavíkurmaraþons. Hægt er að hlaupa fyrir samtökin eða heita á þá hlaupara sem hafa skráð sig í hlaupið til styrktar einhverfusamtökunum, sjá hér. Þökkum við kærlega fyrir stuðninginn. Hlauparar geta komið á skrifstofu samtakanna í ágúst og fengið gefins boli. Einnig er hægt að fá bolina senda út á land.
Hlaupið af stað frá Sóleyjargötu og endað í Lækjargötu.
Ræst verður á eftirfarandi tímum:
8:40 - Maraþon
8:40 - Hálfmaraþon
9:40 - 10 km
12:00 - Skemmtiskokk