Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka

Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka verður haldið 18. ágúst.  Er þetta hlaup mikilvæg fjáröflunarleið fyrir Umsjónarfélag einhverfra því allir þeir sem taka þátt í hlaupinu geta skráð sig til hlaups til styrktar ákveðnu málefni og erum við svo heppin að undanfarin ár hafa margir hlaupið til styrktar félaginu.

Á síðunni http://hlaupastyrkur.is/godgerdafelog/felag/700179-0289  eru þeir skráðir sem hlaupa fyrir Umsjónarfélag einhverfra. Þar getur almenningur farið inn, skoðað hlaupara og heitið á þá með kreditkorti eða með því að senda sms skeyti. Þannig er hægt að hvetja hlauparana til dáða og láta jafnframt gott af sér leiða. Hægt er að heita á hlaupara fram að miðnætti mánudaginn 20. ágúst en hlaupið fer fram laugardaginn 18. ágúst.

Endilega komið þessum upplýsingum áfram til vina og ættingja. Þið sem ætlið að taka þátt í hlaupinu, munið að skrá ykkur þarna inn ef þið hafið áhuga á að styrkja félagið.