Reykjavíkurmaraþon

Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka fer fram laugardaginn 22. ágúst næstkomandi. Í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka 2009 er hægt að hlaupa til góðs og geta hlauparar tengt sig ákveðnu líknarfélagi og óskað eftir að heitið sé á þá. Hægt er að tengja sig góðgerðarfélögunum um leið og skráning fer fram á síðunni www.reykjavikurmarathon.is eða á "mínum síðum". Ekki er mögulegt að skipta um góðgerðarfélag eftir að söfnun er hafin. Viljum við hvetja þá félagsmenn og velunnara sem ætla að hlaupa í ár að styðja Umsjónarfélag einhverfra. Skráningargjöld í hlaupið hækka 1. júlí og er því gott að vera tímanlega með skráninguna. Í ár verður sú breyting á áheitum að þeir aðilar sem halda utan um skráninguna taka þóknun af hverju áheiti sem kemur inn hjá þeim og er þóknunin 10%. Því kemur betur út fyrir Umsjónarfélagið að greiða áheitin beint inn á reikning félagsins í Kaupþingi, númerið er 0334-26-002204 og kennitala félagsins er 700179-0289. Er þá hægt að setja í texta með greiðslu að um áheit sé að ræða á ákveðið nafn.
Með kveðju, Sigrún Birgisdóttir, skrifstofu Umsjónarfélags einhverfra.