PECS grunnnámskeið

PECS Myndrænt boðskiptakerfi grunnnámskeið febrúar 2018
Myndræna boðskiptakerfið PECS (Picture Exchange Communication System) er óhefðbundin boðskiptaleið þróuð af Frost og Bondy (1994) fyrir börn með einhverfu. Aðaláherslan í PECS er að þjálfa frumkvæði til að hafa boðskipti við aðra. Sá sem notar PECS lærir að nota mynd til þess að biðja um hlut/athöfn og annað sem hann hefur þörf á að tjá sig um. PECS er vel skipulagt kerfi í sex stigum þar sem þjálfuð er stigvaxandi færni til boðskipta.
 
Á námskeiðinu verður fjallað um fræðilegan grunn og þær aðferðir sem eru notaðar til að þjálfa stigin sex í PECS. Megin áhersla á þessu námskeiði verður lögð á að þátttakendur læri innlögn og þjálfun á fyrstu þremur stigum PECS. Auk þess verða kynntar leiðir til að skrá framvindu og meta árangur þjálfunarinnar.
Kennslan fer fram með fyrirlestrum, umræðum og sýnikennslu. Sýnd verða dæmi um PECS þjálfun á myndböndum og þátttakendur fá tækifæri til að æfa grunnatriðin í þjálfunartækninni.
 
Sigrún Kristjánsdóttir þroskaþjálfi hefur umsjón með námskeiðinu.
Námskeiðið verður haldið í Reykjavík, dagana 15.og 16. febrúar kl. 9:00– 12:00 báða dagana
Þátttökugjald er 18.000 (foreldri greiðir 12. þúsund).
Þátttakendur eru beðnir um að skrá sig með því að senda tölvupóst á netfangið: diddakr@internet.is fyrir 5. febrúar