PECS framhaldsnámskeið 26. apríl 2017

PECS framhaldsnámskeið 26.apríl 2017 
 
Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa þekkingu á fyrstu þremur stigunum í PECS. Aðaláherslan á þessu námskeiði verður á eftirfarandi þætti í PECS þjálfun: 
• Kynntar verða aðferðir við innlögn á seinni stigum PECS  þ.e. stig 4, 5 og 6.  
• Þátttakendur æfa sig við notkun setningaborða í hlutverki „barns“ og „viðmælanda“    • Farið verður yfir ýmsar hugmyndir og leiðir til þess að fjölga tækifærum til boðskipta og auka líkur á alhæfingu til að nota PECS í öllum daglegum aðstæðum.  
• Stig 3 og 5 fyrir Ipad kynnt og skoðað 
• Rætt verður um skráningar á framvindu PECS þjálfunar og hvernig megi taka saman upplýsingar fyrir þjálfunarfundi.  
• Umræður og  reynslusögur þátttakenda.  
Sýnd verða dæmi um PECS þjálfun á myndböndum og hugmyndir af ýmiskonar þjálfunargögnum verða kynnt fyrir þátttakendum.  
 
Námskeiðið verður haldið  í Reykjavík (staðsetning/salur fer eftir fjölda þátttakenda, auglýst síðar) frá klukkan  9:00– 12:30  
Þátttökugjald er 11.000 fyrir starfsfólk, 7.000 fyrir foreldri 
 
Umsjón með námskeiðinu  hefur Sigrún Kristjánsdóttir þroskaþjálfi 
 
Þátttakendur eru beðnir um að skrá sig á námskeiðið með því að senda tölvupóst á diddakr@internet.is  fyrir  fimmtudaginn 13.apríl