PECS framhaldsnámskeið

Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa þekkingu á fyrstu þremur stigunum í PECS. Aðaláherslan á þessu námskeiði verður á eftirfarandi þætti í PECS þjálfun:

Kynnt verða markmið og aðferðir við innlögn á seinni stigum PECS  þ.e. stig 4, 5 og 6. Kynnt verður PECS app fyrir Ipad.

Þátttakendur æfa sig við notkun setningaborða í hlutverki „barns“ og „viðmælanda“

Rætt verður um skráningar á framvindu PECS þjálfunar

Sýnd verða dæmi um PECS þjálfun á myndböndum og hugmyndir af ýmiskonar þjálfunargögnum verða kynnt fyrir þátttakendum.

Farið verður yfir ýmsar hugmyndir og leiðir til þess að fjölga tækifærum til boðskipta og auka líkur á góðri alhæfingu á færni til að nota PECS í öllum daglegum aðstæðum.

Námskeiðið verður haldið í Reykjavík,  29.apríl frá klukkan 9:00– 12:30

Umsjón með námskeiðinu  hefur Sigrún Kristjánsdóttir þroskaþjálfi

Þátttökugjald er 14.000 (foreldri greiðir 9 þúsund)

Þátttakendur eru beðnir um að skrá sig á námskeiðið með því að senda tölvupóst á diddakr@internet.is