Opinn jólafundur 3. desember

Fimmtudaginn 3. desember klukkan 20-22 verður opinn félagsfundur hjá Umsjónarfélagi einhverfra. Fundurinn verður með jólalegu yfirbragði, jólasmákökur, konfekt og gos. Verða þar rædd þau málefni sem helst brenna á fólki. Hópastarfið í Reykjavík fellur niður í desember en þessi fundur mun verða spjallfundur með svipuðu yfirbragði og hópastarfið.

Fundarstaður: Háaleitisbraut 13, 4. hæð.

Fundurinn er öllum opinn.

Stjórnin.