Önnur skynjun - ólík veröld

Bókin "Önnur skynjun - ólík veröld" eftir Jarþrúði Þórhallsdóttur er komin til sölu hjá Einhverfusamtökunum.

Í bókinni "Önnur skynjun - ólík veröld" leitar Jarþrúður Þórhallsdóttir, fötlunarfræðingur og sjúkraþjálfari, skýringa á erfiðleikum fólks á einhverfurófi.  Hún rekur sögu þeirra sjónarmiða og kenninga sem hingað til hafa ráðið för í rannsóknum á einhverfu og greinir frá eigin rannsókn sem hún gerði í fötlunarfræði við Háskóla Íslands.  

Þvert á ríkjandi aðferðir leitar Jarþrúður í rannsókn sinni til fólksins sjálfs um upplýsingar.  Fimm Karlar og þrjár konur lýsa harðri glímu við eigin viðbrögð og annarra í baráttu sinni fyrir því að vera tekin gild í samfélaginu og verða sátt við sjálf sig og aðra.  Niðurstöðurnar gefa veigamiklar upplýsingar um lífið á einhverfurófi og undirstrika mikilvægi þess að aðrir sýni sérstakri skynjun og skynúrvinnslu skilning.  

Í lok bókarinnar eru gefin einföld og hagnýt ráð til að fækka þeim hindrunum sem mæta fólki á einhverfurófi. Bókin gefur einstaka innsýn í líf fólks á einhverfurófi.  Hún fæst á sérstöku tilboðsverði hjá Einhverfusamtökunum á 3.900 krónur.  Sími: 562 1590, tölvupóstur: einhverfa@einhverfa.is