Önnur skynjun – ólík veröld

Opinn fræðslufundur Umsjónarfélags einhverfra

Fimmtudaginn 25. nóvember 2010

Jarþrúður Þórhallsdóttir fötlunarfræðingur og einhverfuráðgjafi segir frá meistararannsókn sinni Önnur skynjun – ólík veröld: Líf fólks á litrófi einhverfu. Rannsóknin byggir á viðtölum við fólk á einhverfurófi, þar sem spurt var út í lífshlaup þess. Sérstök áhersla var lögð á skynjun og skynúrvinnslu þátttakenda og áhrif hennar á daglegt líf. Skólaganga, gildi greiningar inn á einhverfuróf og sjálfsskilningur var einnig sérstaklega skoðað.

Fundartími: Fimmtudaginn 25. nóvember, klukkan 20:00-22:00.

Fundarstaður: Háaleitisbraut 13, 4. hæð.

Fundurinn er öllum opinn.