Myndrænt boðskiptakerfi PECS framhaldsnámskeið

Myndrænt boðskiptakerfi PECS framhaldsnámskeið október 2018
 
Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa þekkingu á fyrstu þremur stigunum í PECS. Aðaláherslan á þessu námskeiði verður á eftirfarandi þætti í PECS þjálfun:
• Kynntar verða markmið í þjálfuninni og aðferðir við innlögn á seinni stigum PECS þ.e. stig 4, 5 og 6. Kynnt verður PECS app fyrir Ipad.
• Farið verður yfir ýmsar hugmyndir og leiðir til þess að fjölga tækifærum til boðskipta og auka líkur á góðri alhæfingu á færni til að nota PECS í öllum daglegum aðstæðum.
• Rætt verður um skráningar á framvindu PECS þjálfunar og hvernig megi taka saman upplýsingar
• Þátttakendur æfa sig við notkun setningaborða í hlutverki „barns“ og „viðmælanda“
• Umræður og reynslusögur þátttakenda.
Sýnd verða dæmi um PECS þjálfun á myndböndum og hugmyndir af ýmiskonar þjálfunargögnum verða kynnt fyrir þátttakendum.
 
Námskeiðið verður haldið í Reykjavík, 31.október frá klukkan 9:00– 12:30
Umsjón með námskeiðinu hefur Sigrún Kristjánsdóttir þroskaþjálfi
Þátttökugjald er 13.000 (foreldri greiðir 8 þúsund)
Þátttakendur eru beðnir um að skrá sig á námskeiðið með því að senda tölvupóst á diddakr@internet.is