Listsýning Einhverfusamtakanna, Marglitur mars er haldin í fimmta sinn, dagana 11. – 12. apríl 2026.
Staðsetning: Nýsköpunarsetrið við Lækinn, Skólabraut 3, 220 Hafnarfirði.
Opnunartími: 12-16 báða dagana.
Allir velkomnir.
Yfirskrift sýningar er Marglitur mars, þar sem kynning á listafólkinu fer að mestu fram í mars á samfélagsmiðlum.
Móttökur hafa verið frábærar en hugmyndin á bak við verkefnið byggir á fjölbreytileika einhverfurófsins og þeirri margbreytilegu listsköpun og frumleika sem þar er að finna. Í forgrunni er fjölbreyttur hópur listafólks og skapandi einstaklinga á einhverfurófi og verður verkum þeirra leyft að tala. Listformið er fjölbreytt, myndlist, flutningur ofl.