Geðverndarfélag Akureyrar stóð fyrir vel sóttu málþingi í Hofi á Akureyri undir yfirskriftinni Einhverfa fullorðinna – Hvað þarf að breytast? Fjöldi fólks sótti málþingið og margir fylgdust einnig með í beinu streymi.
Á málþinginu var fjallað um stöðu fullorðinna einhverfra og aðgengi að heilbrigðisþjónustu, félagsþjónustu, endurhæfingu og öðrum stuðningi. Skýr samhljómur var um að mikil þekking er á stöðunni og tillögur að úrbótum liggi þegar fyrir – nú þurfi að fylgja þeim eftir með raunverulegum aðgerðum.
Í lok málþingsins var samþykkt áskorun til Alþingis og stjórnvalda um að taka málefni fullorðinna einhverfra föstum tökum. Þar er meðal annars skorað á Alþingi að tryggja fjármagn til að koma á fót þjónustu- og þekkingarsetri fyrir fullorðna einhverfa sem þjóni landinu öllu og byggi starf sitt á sérþekkingu og virkri þátttöku einhverfs fólks.
Einhverfusamtökin taka heilshugar undir áskorunina.
„Þekkingin er til, úrbótatillögur liggja fyrir, nú þurfa verkin að tala!“
Nánar má lesa um málþingið í umfjöllun Akureyri.net.
Upptöku af málþinginu má horfa á í heild sinni hér:
Myndir frá málþinginu má nálgast á Facebook-síðu Geðverndarfélags Akureyrar.
Einhverfusamtökin færa Geðverndarfélagi Akureyrar hjartans þakkir fyrir vel heppnað og mikilvægt málþing. Við þökkum jafnframt öllum frummælendum og öðrum þátttakendum fyrir þeirra framlag.
Það er ljóst að stórt verk er fram undan við að bæta þjónustu og stuðning við einhverft fullorðið fólk. Nú þarf að fylgja umræðunni og fyrirliggjandi þekkingu eftir með aðgerðum.