Málþing Sjónarhóls

Málþing Sjónarhóls 21.mars 2013, kl.12:30-16:30  Skráning á síðunni www.sjonarholl.net 
 
Málþing um þjónustu- og meðferðarúrræði fyrir börn og ungmenni með verulegan hegðunar- og/eða tilfinningavanda. Málþingið verður haldið á Hótel Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2.
 
 
Fundarstjóri: Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.
 
12.30-12.40    Setning
                        Ágúst Hrafnkelsson, formaður stjórnar Sjónarhóls
 
12.40-13.10    Verkefni Sjónarhóls: Raddir foreldra barna með  verulega  hegðunar- og tilfinningaörðugleika. Skýrsla Sjónarhóls kynnt.
          Jón Björnsson, sálfræðingur
                           
13.10-13.30   Réttur barna á að þörfum þeirra sé mætt: Hvað segir Barnasáttmálinn? Hverju mun lögleiðing Barnasáttmálans breyta?
           Elísabet Gísladóttir frá Umboðsmanni barna
 
13.30-13.55    Sjónarhóll foreldra
           Anna Elísabet Gestsdóttir og Sigurður Grétar Sigurðsson
 
13.55-14.25    Barnavernd og félagsþjónusta við börn með sérþarfir: Hvað hefur tekist vel? Hvað hefur (enn) ekki tekist? Í hverju þurfa  næstu framfarir að felast?
           Rannveig Einarsdóttir, félagsmálastjóri Hafnarfjarðarkaupstaðar
 
14.25-14.55    Kaffi og léttar veitingar    
 
14.55-15.20      Sjónarhóll foreldris
            Kristín Ósk Hlynsdóttir
 
15.20-15.45    Þjónusta grunnskóla við börn með sérþarfir - hvað hefur tekist  vel? Hvað hefur (enn) ekki tekist? Í hverju þurfa næstu  framfarir að felast?
            Ásgeir Beinteinsson,  skólastjóri Háteigsskóla
 
15.45-16.10    Lausnir á vettvangi til að mæta þörfum barna með hegðunar- og  tilfinningavanda
           Anna-Lind Pétursdóttir, dósent við Menntavísindasvið HÍ
 
16.10-16.30  Í vinnslu