Málefni barna sem passa ekki í "kassann"

Lausnaþing fimmtudaginn 28. apríl.

Lausnaþingið fer fram í Skriðu, Stakkahlíð, í sal menntavísindasviðs Háskóla Íslands, fimmtudaginn 28. apríl frá kl. 14-17.

Það hefur lengi verið vitað að þegar börn með einhvers konar sérstöðu passa ekki í „kassann“ á kerfið erfitt með takast á við það. Nýútkomin skýrsla ríkisendurskoðunar um geðheilbrigðisþjónustu við börn og unglinga, annað og þriðja þjónustustig, staðfesti það sem fagfólk og aðstandendur hafa lengi vitað. Kerfið er ekki alltaf að virka rétt. Börn eru allt of lengi á biðlistum og á meðan gerist oft lítið eða ekkert í þeirra málum, þroska þeirra og námi. 

Nú er komið að því að skoða hvað hægt er að gera. SAMFOK,
ADHD samtökin,
Barnaheill - Save the Children á Íslandi,
Einhverfusamtökin,
Félag skólastjórnenda í Reykjavík,
Heimili og skóli,
Landssamtökin Þroskahjálp,
Olnbogabörn,
Sjónarhóll,
Umboðsmaður barna
Umhyggja og 
UNICEF
standa fyrir lausnaþingi um næstu skref. Við vitum hver vandinn er, nú þarf að leysa hann. Drög að dagskrá: (Endanleg dagskrá kemur í lok vikunnar) Jakob Guðmundur Rúnarsson, Ríkisendurskoðun, kynnir niðurstöður skýrslunnar Geðheilbrigðisþjónusta við börn og unglinga.Amanda Watkins, aðstoðarforstjóri Evrópumiðstöðvar um nám án aðgreiningar og sérþarfir, kynnir úttekt á framkvæmd skóla án aðgreiningar hér á landi sem Evrópumiðstöðin annast á þessu ári. Hún kynnir einnig lauslega starfsemi Evrópumiðstöðvarinnar. Kristín Björnsdóttir, dósent við HÍ, og Haukur Guðmundsson fjalla um skóla án aðgreiningar. Inga Birna Sigfúsdóttir, Sjónarhóli, fjallar um lausnamiðaða teymisvinnu. Kristín María Indriðadóttir, verkefnastjóri fjölgreinadeildar grunnskóla Hafnarfjarðar, fjallar um vinnu með börnum með fjölþættar þarfir. Foreldrar barna í vanda segja frá reynslu sinni.Skráning fer fram hér: http://goo.gl/forms/4i08no9VjR