Knattspyruæfingar fyrir konu 12-18 ára með þroskahönlun

Fréttatilkynning

Special Olympics á Íslandi, KSÍ, knattspyrnufélagið Víkingur og íþróttafélagið Ösp hafa sett á fót samstarfsverkefni um Unified Sport á Íslandi. Unified Sport er nýtt verkefni hér á landi en verkefnið er á vegum Special Olympics international. Verkefnið felur í sér æfingar og keppni þar sem fatlaðir og ófatlaðir eru saman í liði.

Fyrsta íþróttagreinin sem sett verður upp á þennan hátt er knattspyrna kvenna. Æfingar verða á vegum knattspyrnufélagsins Víkings og íþróttafélagsins Aspar og æft verður einu sinni í viku á laugardögum kl. 12.00 – 13.30 á knattspyrnusvæði Víkings. Þjálfarar verða Einar Guðnason, þjálfari hjá Víkingi og Darri McMahon, þjálfari hjá Ösp.

Stelpur og konur með þroskahömlun er sá markhópur sem æfingarnar ná til og skorað er á þær að taka með sér vinkonur, systur eða skólasystur. Stúlkur úr knattspyrnufélaginun Víkingi verða með á æfingunum sem eru fyrir 12 ára og eldri.

Markmið æfinganna eru:

· Bæta grunntækni í knattspyrnu

· Stuðla að heilsusamlegri hreyfingu

· Stuðla að góðum félagsskap

· Auka áhuga á knattspynu og hreyfingu almennt

· Stuðla að jákvæðri upplifun af knattspyrnu og hreyfingu

Nánari upplýsingar veitir Darri McMahon í síma 8678049 og Ólafur Ólafsson formaður Aspar. Sími 8998164 Netfang ospin@ospin.is Endilega vera óhrædd að koma með fyrirspurnir eða séróskir, við munum reyna að skoða allt sem upp kemur þannig að þetta gangi sem allra best.