KLÚBBURINN - klúbbur fyrir unglinga á Akureyri

Vetrarstarfið að hefjast hjá Klúbbnum
 
Klúbburinn sem er f. ungmenni á einhverfurófinu byrjar á ný næstkomandi þriðjudag 26.8 klukkan 17:00-19:00 (og verður aðra hvora viku á sama tíma). Klúbburinn er fyrir börn í 8.bekk og eldri.  Markmiðið með klúbbnum er að efla virkni ungmennanna, kynna þau fyrir öðrum í svipuðum sporum og bjóða upp á tækifæri til að gera það sem jafnaldrar þeirra eru að fást við í sínum frítíma. Inn á milli verður reynt að efla félagsfærni í gegnum skemmtileg og skapandi verkefni. Klúbburinn er með aðstöðu í Rósenborg, Akureyri.
 
Ungmennin verða að geta tekið þátt í umræðum og sett sér lítilsháttar markmið.
 
Þátttökugjald er 2000 krónur en fyrir utan það þarf stundum að borga fyrir það sem verið er að gera t.d. keilu eða kaffihús.
 
Umsjónamenn klúbbsins eru Birna Guðrún Baldursdóttir, iðjuþjálfi Glerárskóla og Sigríður Hreinsdóttir kennari, Glerárskóla.   (birnag@akmennt.is / 8603982, siggahr@akmennt.is / 845 9871 )
 
Gott er að skrá þátttöku annað hvort með tölvupósti eða símtali, eins er velkomið að hafa samband ef einhverjar spurningar vakna eða frekari upplýsinga er óskað.
Með bestu kveðju
 
 
Birna Guðrún Baldursdóttir iðjuþjálfi Glerárskóla