Kiwanisklúbburinn Jörfi styrkir Einhverfusamtökin

Auður Ákadóttir tekur við styrk frá Kiwanisklúbbnum Jörfa.
Auður Ákadóttir tekur við styrk frá Kiwanisklúbbnum Jörfa.

Friðrik, Jón og Baldur frá Kiwanisklúbbnum Jörfa komu í heimsókn til okkar og færðu Einhverfusamtökunum rausnarlegan styrk að upphæð 630.000 krónur.

Stuðningur sem þessi er okkur ómetanlegur. Við sendum þeim og öllum félögum í Jörfa innilegar þakkir fyrir styrkinn og hlýhug í garð samtakanna.