Okkur vantar ykkar hjálp!
Frá árinu 2009 hafa Einhverfusamtökin haldið úti hópnum Hugsuðum. Starfi fyrir einhverf ungmenni á aldrinum 12–20 ára. Markmiðið er að efla virkni ungmennanna, gefa þeim tækifæri til að kynnast öðrum í svipuðum sporum og taka þátt í því sem jafnaldrar þeirra gera í frítíma sínum.
Við höfum ekki getað hafið starfið nú í haust eins og venja er þar sem við höfum enga styrki fengið til að halda því úti. Reykjavíkurborg synjaði Einhverfusamtökunum um styrk fyrir árið 2026. Við höfum þegar sótt um styrki víða! Við vitum að nú bíða mörg ungmenni eftir því að starfið hefjist að nýju. Við viljum fyrir alla muni halda starfinu áfram en þurfum að tryggja fjármögnun þess.
Einhverfusamtökin hafa undanfarin misseri staðið frammi fyrir miklum áskorunum vegna gífurlegs fjölda erinda sem til okkar berast. Samtökin hafa þó aðeins tvo starfsmenn í hlutastarfi, samtals í eitt stöðugildi.
Þótt við höfum viljann að vopni eru burðir okkar takmarkaðir. Það hefur því miður leitt til þess að svör við símtölum og erindum hafa dregist. Við höfum einnig þurft að hafna ýmsum samstarfsverkefnum, bæði innanlands og utan. Okkur þykir miður að geta ekki alltaf brugðist við eins fljótt og þörf er á.
Einhverfusamtökin eru óhagnaðardrifin samtök sem eru alfarið fjármögnuð með félagsgjöldum, styrkjum og frjálsum framlögum. Stuðningur samfélagsins skiptir því ótrúlega miklu máli fyrir starf okkar.
Þú getur hjálpað með því að styrkja starfið okkar.
Með stökum styrk eða mánaðarlegu framlagi hjálpar þú okkur að halda mikilvægu starfi eins og Hugsuðum áfram. Mánaðarlegur stuðningur veitir okkur meiri fyrirsjáanleika til að skipuleggja starfið til lengri tíma.
Samtökin eru skráð á almannaheillaskrá Skattsins. Fjárstyrkir til samtakanna geta því verið frádráttarbærir hjá styrkveitenda.
Þú getur einnig stutt okkur með því að gerast félagi í Einhverfusamtökunum. Skráðu þig í samtökin hér.
Takk fyrir að leggja okkur lið. 💚