Jólafundur Umsjónarfélags einhverfra

Jólafundur Umsjónarfélagseinhverfra verður haldinn miðvikudaginn 7. desember klukkan 20:00-22:00 að Háaleitisbraut 13. 4. hæð. Þetta er spjallfundur með léttu yfirbragði, piparkökum, gosi og konfekti. Fundurinn kemur í stað foreldrahópa í desember. Á fundinum ætlum við að sýna stuttmyndir sem unglingarnir okkar gerðu á sumarnámskeiðum félagsins.

Fundurinn er öllum opinn.