Hvatningarverðlaun ÖBÍ

Þann 3. desember næstkomandi, á alþjóðadegi fatlaðra, veitir Öryrkjabandalag Íslands, Hvatningarverðlaun sín, sjá slóð á upplýsingar um verðlaunihttp://www.obi.is/um-obi/hvatningarverdlaunOBI/

Tilnefningar fyrir árið 2013 óskast.

 Nú leitum við til þín og þíns fólks um hugmyndir að tilnefningum. Veitt verða þrenn verðlaun, ein í hverjum flokki:

  • einstaklings
  • fyrirtækis/stofnunar
  • umfjöllunar/kynningar
  •  til verðugra fulltrúa sem þykja hafa skarað fram úr og endurspeglað nútímalegar áherslur um jafnrétti, sjálfstætt líf og þátttöku fatlaðra í samfélaginu, sem stuðla að einu samfélagi fyrir alla.

Rafrænt eyðublað til útfyllingar, http://www.obi.is/um-obi/hvatningarverdlaunOBI/tilnefningar2013eydublad/

Tilnefningar sendist fyrir 15. september nk.

ATH. Tilnefna má sömu aðila og tilnefndir voru í fyrra ef vitað er að þeir falla undir þau markmið sem sett voru með þessum verðlaunum.


f.h. undirbúningsnefndar

Hvatningarverðlauna ÖBÍ 2013

 Bára Snæfeld

starfsmaður nefndarinnar