Hópastarf í október

Foreldrahópar:

Akranes: Foreldrahópur einhverfra barna á Akranesi og nágrenni ætlar að hittast miðvikudaginn 6. október klukkan 20:30 í Fjöliðjunni við Dalbraut Akranesi. Nánari upplýsingar er hægt að fá í síma 6152177 eða með því að senda á netfangið elsa.lara.arnardottir@akranes.is

Akureyri: Foreldrahópur á Akureyri ætlar að hittast þriðjudaginn 12. október klukkan 20:00 í húsnæði Þroskahjálpar í Kaupangi við Mýrarveg. Kveðja, Elín M. Lýðsdóttir, elin@hugurax.is

Reykjavík:

Hópur foreldra barna með Aspergersheilkenni/ ódæmigerða einhverfu mun hittast miðvikudagskvöldið 6. október klukkan 20:00, að Háaleitisbraut 13, 2. hæð.

Hópur foreldra barna með einhverfu í leikskólum/grunnskólum mun hittast miðvikudagskvöldið 6. október klukkan 20:00, að Háaleitisbraut 13, 4. hæð.

Reykjanes: Hópur foreldra á Reykjanesi mun hittast fimmtudagskvöldið 7. október kl. 20:30 í Ragnarsseli, húsi Þroskahjálpar, Suðurvöllum 7, Reykjanesbæ. Vonumst til að sjá sem flesta. Kveðja, Jóhanna María, johannamaria@simnet.is 862-8209

Suðurland: Foreldrar á Suðurlandi ætla að hittast fimmtudagskvöldið 7. október klukkan 19:30-21:30, í húsnæði Svæðisskrifsstofu um málefni fatlaðra, Eyravegi 25, Selfossi. Kveðja, Aðalbjörg Skúladóttir, Adalbjorg.Skuladottir@landsbankinn.is

Vestmannaeyjar: Við ætlum að hafa núna fasta fundi fyrsta þriðjudag hvers mánaðar kl. 19.30 í frístundamiðstöðinni Rauðagerði. Fyrsti fundurinn þriðjudagskvöldið 5. október. Með kveðju, Guðrún J. gudrun@vestmannaeyjar.is

Út úr skelinni: Hópur eldri einstaklinga með ódæmigerða einhverfu og Aspergersheilkenni (18 ára og eldri) hittist næst sunnudaginn 17. október, klukkan 15:15-17.15, að Háaleitisbraut 13, 4. hæð. Sá hópur hittist svo á tveggja vikna fresti á Háaleitisbrautinni. Allir velkomnir. Ekki þarf að tilkynna þátttöku í hópastarfið, bara mæta á staðinn