Hópastarf í Nóvember

Akureyri:

Ákveðið hefur verið að stofna stuðningshóp á Akureyri fyrir foreldra barna með fötlun á einhverfurófi. Mun hópurinn starfa með svipuðum hætti og aðrir foreldrahópar hjá Umsjónarfélagi einhverfra. Stofnfundurinn verður haldinn mánudaginn 3. nóvember, klukkan 20:00 hjá Þroskahjálp, Kaupangi við Mýrarveg. Hópurinn mun svo hittast reglulega fyrsta mánudag í mánuði. Nánari upplýsingar veita Elín M. Lýðsdóttir, mailto:melin@hugurax.is og Sigrún Birgisdóttir, einhverf@vortex.is, sími: 8972682.

Reykjavík:

Hópur foreldra barna með Aspergersheilkenni/ ódæmigerða einhverfu mun hittast miðvikudagskvöldið 5. nóvember klukkan 20:00, að Háaleitisbraut 13, 2. hæð.

Hópur foreldra barna með einhverfu í leikskólum/grunnskólum mun hittast fimmtudagskvöldið 6. nóvember klukkan 20:00, að Háaleitisbraut 13, 2. hæð.

Út úr skelinni, hópur eldri einstaklinga með ódæmigerða einhverfu og Aspergersheilkenni (18 ára og eldri) hittist næst sunnudaginn 9. nóvember, klukkan 16:00, að Háaleitisbraut 13, 4. hæð. (Láta vita af þátttöku til Laufeyjar laufeyg@gmail.com ). Sá hópur hittist svo á tveggja vikna fresti á Háaleitisbrautinni.

Suðurnesjum:

Hópur foreldra á Suðurnesjum mun hittast fimmtudaginn 6. nóvember kl. 20,30 í Ragnarsseli, húsi Þroskahjálpar, Suðurvöllum 7, Reykjanesbæ. Vonumst til að sjá sem flesta.

Kveðja, Jóhanna María, johannamaria@simnet.is, 862-8209

Selfossi:

Næsti fundur foreldrahópsins á Selfossi verður fimmtudaginn 6. nóvember kl. 19:30, að Eyravegi 25, Selfossi.

Kveðja, Aðalbjörg Skúladóttir.