Hópastarf í mars

Akranes: Foreldrahópur á Akranesi mun hittast mánudaginn 1. mars klukkan 20:30. Fundarstaður er Fjöliðjan á Akranesi við Dalbraut. Allir velkomnir. Kveðja, Elsa Lára. elsa.lara.arnardottir@akranes.is s: 431-2177 og 615-2177.
Reykjavík:

Hópur foreldra eldri barna með einhverfu í grunnskólum/framhaldsskólum mun hittast þriðjudagskvöldið 2. mars klukkan 20:00, að Háaleitisbraut 13. 4. hæð. Hópur foreldra barna með Aspergersheilkenni/ ódæmigerða einhverfu í grunnskólum/framhaldsskólum mun hittast miðvikudagskvöldið 3. mars klukkan 20:00, að Háaleitisbraut 13, 2. hæð.Hópur foreldra yngri barna með einhverfu í leikskólum/grunnskólum mun hittast fimmtudagskvöldið 4. mars klukkan 20:00, að Háaleitisbraut 13, 4. hæð. Út úr skelinni, hópur eldri einstaklinga með ódæmigerða einhverfu og Aspergersheilkenni (18 ára og eldri) hittist næst sunnudaginn 7. mars, klukkan 15:15-17.15, að Háaleitisbraut 13, 4. hæð. Sá hópur hittist svo á tveggja vikna fresti á Háaleitisbrautinni. Allir velkomnir.

Akureyri: Foreldrahópur á Akureyri ætlar að hittast mánudaginn 8. mars klukkan 20:00 í húsnæði Þroskahjálpar í Kaupangi við Mýrarveg. Kveðja, Elín M. Lýðsdóttir, elin@hugurax.is

Reykjanes: Hópur foreldra á Reykjanesi mun hittast fimmtudagskvöldið 4. mars kl. 20:30 í Ragnarsseli, húsi Þroskahjálpar, Suðurvöllum 7, Reykjanesbæ. Þórdís Þormóðsdóttir fyrrverandi fjölskylduráðgjafi Þroskahjálpar á Suðurnesjum mæti á fundinn með fræðslu. Vonumst til að sjá sem flesta. Kveðja, Jóhanna María, johannamaria@simnet.is, 862-8209

Suðurland: Foreldrar á Suðurlandi ætla að hittast fimmtudagskvöldið 4. mars klukkan 19:30-21:30, í húsnæði Svæðisskrifsstofu um málefni fatlaðra, Eyravegi 25, Selfossi. Kveðja, Aðalbjörg Skúladóttir, abba@verksud.is