Hópastarf í maí

Reykjavík:

Hópur foreldra eldri barna með einhverfu í grunnskólum/framhaldsskólum mun hittast þriðjudagskvöldið 4. maí klukkan 20:00, að Háaleitisbraut 13. 2. hæð.

Hópur foreldra barna með Aspergersheilkenni/ ódæmigerða einhverfu í grunnskólum/framhaldsskólum mun hittast miðvikudagskvöldið 5. maí klukkan 20:00, að Háaleitisbraut 13, 2. hæð.

Hópur foreldra barna með einhverfu í leikskólum/grunnskólum mun hittast fimmtudagskvöldið 6. maí klukkan 20:00, að Háaleitisbraut 13, 2. hæð.

Út úr skelinni, hópur eldri einstaklinga með ódæmigerða einhverfu og Aspergersheilkenni (18 ára og eldri) hittist næst sunnudaginn 9. maí, klukkan 15:15-17.15, að Háaleitisbraut 13, 4. hæð. Allir velkomnir.

Akureyri: Foreldrahópur á Akureyri ætlar að hittast mánudaginn 10. maí klukkan 20:00 í húsnæði Þroskahjálpar í Kaupangi við Mýrarveg. Kveðja, Elín M. Lýðsdóttir, elin@hugurax.is

Reykjanes: Hópur foreldra á Reykjanesi mun hittast fimmtudagskvöldið 6. maí kl. 20:30 í Ragnarsseli, húsi Þroskahjálpar, Suðurvöllum 7, Reykjanesbæ. Gyða M. Arnmundsdóttir sérkennslufulltrúi Fræðsluskrifstofu Reykjanesbæjar kemur á fundinn og kynnir teymisvinnu og mikilvægi hennar til að þjónusta við barnið gangi sem best fyrir sig. Vonumst til að sjá sem flesta. Kveðja, Jóhanna María, johannamaria@simnet.is, 862-8209

Suðurland: Foreldrar á Suðurlandi ætla að hittast fimmtudagskvöldið 6. maí klukkan 19:30-21:30, í húsnæði Svæðisskrifsstofu um málefni fatlaðra, Eyravegi 25, Selfossi. Arna Ír Gunnarsdóttir kemur og ræðir við okkur um áhrif þess að málefni fatlaðra færast yfir til sveitarfélaga. Kveðja, Aðalbjörg Skúladóttir, abba@verksud.is

Foreldrahóparnir eru svo farnir í sumarleyfi fram í september.