Hópastarf í febrúar

Út úr skelinni: Hópur eldri einstaklinga með ódæmigerða einhverfu og Aspergersheilkenni (18 ára og eldri) hittist næst sunnudaginn 6. febrúar klukkan 15:15-17.15, að Háaleitisbraut 13, 4. hæð. Sá hópur hittist svo á tveggja vikna fresti á Háaleitisbrautinni. Allir velkomnir.

Foreldrahópar:

Akureyri: Foreldrahópur á Akureyri ætlar að hittast þriðjudaginn 8. febrúar klukkan 20:00 í húsnæði Þroskahjálpar í Kaupangi við Mýrarveg. Kveðja, Elín M. Lýðsdóttir, elin@hugurax.is

Reykjavík:

Hópur foreldra barna með Aspergersheilkenni/ ódæmigerða einhverfu mun hittast miðvikudagskvöldið 2. febrúar klukkan 20:00, að Háaleitisbraut 13, 2. hæð.

Hópur foreldra barna með einhverfu í leikskólum/grunnskólum mun hittast miðvikudagskvöldið 2. febrúar klukkan 20:00, að Háaleitisbraut 13, 4. hæð.

Reykjanes: Hópur foreldra á Reykjanesi mun hittast fimmtudagskvöldið 3. febrúar kl. 20:30 í Ragnarsseli, húsi Þroskahjálpar, Suðurvöllum 7, Reykjanesbæ. Vonumst til að sjá sem flesta. Kveðja, Jóhanna María, johannamaria@simnet.is 862-8209

Vestmannaeyjar: Við ætlum að hittast þriðjudagskvöldið 1. febrúar klukkan 20:00 í frístundamiðstöðinni Rauðagerði. Með kveðju, Guðrún J. gudrun@vestmannaeyjar.is