Hinsegin einhverfa - sýnig í Litla Galleríinu í Hafnarfirði

Sýningin „Hinsegin Einhverfa“, er safn mynda af einstaklingum sem eru hinsegin og staðsetja sig á einhverfurófi, með eða án einhverfugreiningar. Sýningin er haldin í Litla Galleríinu, Strandgötu 19, Hafnarfirði, helgina 25.-28. maí.
Eva Ágústa ljósmyndari sem sjálf er trans og á einhverfurófi, hefur undanfarin ár einbeitt sér að því að segja sögur af fólki út frá sínum hugmyndum um fólk.
Frá unga aldri hefur hún fylgst með því hvernig einstaklingar og samfélagið haga sér í viðleitni til að passa betur sjálf inn í samfélagið, sem er algeng reynsla meðal einhverfra. Einhverfir verða gjarnan utanvelta vegna skynjunar sinnar á umhverfinu. Í dag notar Eva þessa óhefðbundnu skynjun sem sem styrkleika í myndum sínum.
Sýningin „Hinsegin Einhverfa“ er tilraun Evu til að auka sýnileika þessara tveggja hópa sem eiga til að týnast í samfélaginu og verða ósýnileg. Eva vann verkefnið þannig að hún kynnti sér viðfangsefnin mjög persónulega og út frá því myndaði hún fólkið í því umhverfi þar sem því líður best. Eva blandar saman náttúrulegri birtu og aukalýsingu til að skapa þá persónu sem hún sér og sem einstaklingarnir samþykkja.
Eva lærði ljósmyndun í Tækniskólanum í Reykjavík árið 2009 og lauk sveinsprófi haustið 2011. Hún tók sér pásu frá ljósmyndun í nokkur ár en hefur að undanförnu fundið hillu sína aftur og hefur meðal annars fengist við nokkur verkefni sem snúa að því að segja sögur af fólki.
Sýningin er unnin í samstarfi við Einhverfusamtökin.
Sýningin opnar föstudaginn 26. maí kl: 13:00 og tekur Eva vel á móti gestum.
Viðburðurinn er styrktur af Menningar og ferðamálanefnd Hafnarfjarðarbæjar.