Fundarröð ÖBÍ, Sauðárkrókur

Fundaröð Öryrkjabandalags Íslands

Fatlað fólk á tímamótumEru mannréttindi virt?Fundur á Sauðárkróki miðvikudaginn 13. apríl 2011 kl. 14.00

Yfirfærsla á þjónustu fyrir fatlað fólk frá ríki til sveitarfélaga fór fram um síðustu áramót. Öryrkjabandalag Íslands (ÖBÍ) heldur af því tilefni fræðslu- og umræðufundi víðs vegar um landið. Næsti fundur verður í Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra Sauðárkróki kl. 14.00 – 16.30. Efni funda:

Ný hugmyndafræði um fötlun og Samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Helga Baldvinsd. Bjargardóttir - Fötlunarfræði HÍ
Þekkir þú réttindi þín? Hrefna K. Óskarsdóttir – ÖBÍ
Fyrirhuguð Þekkingarmiðstöð Sjálfsbjargar. Ingibjörg Loftsdóttir- Sjálfsbjörg
Viðbrögð ÖBÍ vegna yfirfærslunnar. Guðmundur Magnússon - formaður ÖBÍ
Umræður og fyrirspurnir.
Fatlað fólk, aðstandendur, starfsfólk og stjórnendur sem vinna að málefnum fatlaðs fólks og aðrir sem áhuga hafa á málefninu eru velkomnir. Mætum öll Ekkert um okkur án okkar