Fundaröð Öryrkjabandalangs Íslands

Fatlað fólk á tímamótum Eru mannréttindi virt? Fundur í Reykjanesbæ 1. febrúar kl. 16 - 18.

Yfirfærsla á þjónustu fyrir fatlað fólk frá ríki til sveitarfélaga fór fram um síðustu áramót. Öryrkjabandalag Íslands (ÖBÍ) heldur af því tilefni upplýsingafundi víðs vegar um landið. Fyrsti fundurinn verður á Nesvöllum í Reykjanesbæ þriðjudaginn 1. febrúar nk. kl. 16.00 - 18.00. Efni fundar:

Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fólks með fötlun og ný hugmyndafræði. Helga Baldvinsd. Bjargardóttir - Fötlunarfræði HÍ
Ný lög um málefni fatlaðs fólks. Hrefna K. Óskarsdóttir - ÖBÍ
Viðbrögð ÖBÍ vegna yfirfærslunnar. Guðmundur Magnússon - formaður ÖBÍ
Raddir sveitarstjórnarmanna og notenda eða mögulegra notenda
Notendastýrð persónuleg aðstoð kynnt ásamt fyrirhugaðri Þekkingar- og þjónustumiðstöð Sjálfsbjargar.
Fatlað fólk, aðstandendur, starfsfólk og stjórnendur sem vinna að málefnum fatlaðs fólks ásamt þeim sem áhuga hafa á málefninu eru velkomnir á fundinn.

Mætum öll Ekkert um okkur án okkar