Fundaröð Öryrkjabandalags Íslands

Fatlað fólk á tímamótum

Eru mannréttindi virt?

Fundir á Vesturlandi þriðjudaginn 22. febrúar 2011.

Samkomuhúsi Grundarfjarðar kl. 13.00–15.30.

Grundaskóla á Akranesi kl. 19.30–22.00.

Yfirfærsla á þjónustu fyrir fatlað fólk frá ríki til sveitarfélaga fór fram um síðustu áramót. Öryrkjabandalag Íslands (ÖBÍ) heldur af því tilefni fræðslu- og umræðufundi víðs vegar um landið. Næstu fundir verða í

Samkomuhúsi Grundarfjarðar kl. 13.00–15.30 og í Grundaskóla á Akranesi kl. 19.30–22.00.

Efni funda:

Ný hugmyndafræði um fötlun og Samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Helga Baldvinsd. Bjargardóttir - Fötlunarfræði HÍ
Þekkir þú réttindi þín? Hrefna K. Óskarsdóttir - ÖBÍ
Viðbrögð ÖBÍ vegna yfirfærslunnar. Guðmundur Magnússon - formaður ÖBÍ
Notendastýrð persónuleg aðstoð kynnt ásamt fyrirhugaðri Þekkingar- og þjónustumiðstöð Sjálfsbjargar.
Umræður og fyrirspurnir.
Fatlað fólk, aðstandendur, starfsfólk og stjórnendur sem vinna að málefnum fatlaðs fólks og aðrir sem áhuga hafa á málefninu eru velkomnir.

Mætum öll Ekkert um okkur án okkar