Fundaröð Öryrkjabandalags Íslands

Fatlað fólk á tímamótum

Eru mannréttindi virt?

Fundur á Selfossi 9. febrúar kl. 16.30 – 19.00

Yfirfærsla á þjónustu fyrir fatlað fólk frá ríki til sveitarfélaga fór fram um síðustu áramót. Öryrkjabandalag Íslands (ÖBÍ) heldur af því tilefni fræðslu- og umræðufundi víðs vegar um landið. Næsti fundur verður í Sunnulækjarskóla miðvikudaginn 9. febrúar nk. kl. 16.30 – 19.00 Efni fundar:

Ný hugmyndafræði um fötlun og Samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Helga Baldvinsd. Bjargardóttir - Fötlunarfræði HÍ
Þekkir þú réttindi þín? Hrefna K. Óskarsdóttir - ÖBÍ
Viðbrögð ÖBÍ vegna yfirfærslunnar. Guðmundur Magnússon - formaður ÖBÍ
Notendastýrð persónuleg aðstoð kynnt ásamt fyrirhugaðri Þekkingar- og þjónustumiðstöð Sjálfsbjargar.
Raddir sveitarstjórnarmanna og notenda eða mögulegra notenda
Umræður og fyrirspurnir.
Fatlað fólk, aðstandendur, starfsfólk og stjórnendur sem vinna að málefnum fatlaðs fólks og aðrir sem áhuga hafa á málefninu eru velkomnir.

Mætum öll Ekkert um okkur án okkar