Foreldrahópur í Reykjavík og nágrenni í september

Foreldrar barna á einhverfurófi í leikskólum og grunnskólum/framhaldsskólum munu hittast miðvikudagskvöldið 2. september klukkan 20:00, að Háaleitisbraut 13, fundarherbergi á 2. hæð.

Nánari upplýsingar veitir Sigrún í síma: 8972682 eða á netfanginu sigrun@einhverfa.is 

Fundirnir eru öllum opnir, ekki þarf að tilkynna þátttöku.

Vegna Covid þá biðjum við fólk að virða fjárlægðarreglur. Ef margir mæta er mögulegt að við verðum í móttöku Sjónarhóls á 2. hæð því þar er meira rými.