Foreldrahópar í maí

Foreldrahópar:

Vestmannaeyjar: Við ætlum að hittast þriðjudagskvöldið 3. maí klukkan 20:00 í frístundamiðstöðinni Rauðagerði. Með kveðju, Guðrún J. gudrun@vestmannaeyjar.is

Reykjavík:

Hópur foreldra barna með Aspergersheilkenni/ ódæmigerða einhverfu mun hittast miðvikudagskvöldið 4. maí klukkan 20:00, að Háaleitisbraut 13, 2. hæð.

Hópur foreldra barna með einhverfu í leikskólum/grunnskólum mun hittast miðvikudagskvöldið 4. maí klukkan 20:00, að Háaleitisbraut 13, 4. hæð.

Reykjanes: Hópur foreldra á Reykjanesi mun hittast fimmtudagskvöldið 5. maí kl. 20:30 í Ragnarsseli, húsi Þroskahjálpar, Suðurvöllum 7, Reykjanesbæ. Vonumst til að sjá sem flesta. Kveðja, Jóhanna María, johannamaria@simnet.is 862-8209

Akureyri: Foreldrahópur á Akureyri ætlar að hittast miðvikudagskvöldið 11. maí klukkan 20:00 í húsnæði Þroskahjálpar í Kaupangi við Mýrarveg. Kveðja, Elín M. Lýðsdóttir, elin@hugurax.is

Hóparnir eru svo komnir í frí fram til hausts.