Fögnum alþjóðlegum degi einhverfu 2. apríl með öllum regnbogans litum.

Í tilefni af alþjóðlegum degi einhverfu 2. apríl, fögnum við fjölbreytileika einhverfurófsins með öllum regnbogans litum. Einhverft fólk er allskonar, rétt eins og annað fólk og hefur einhverfusamfélagið valið sér eilífðarmerkið í regnbogalitunum, til að tákna óendanlega fjölbreytni hópsins.  

Ef skólar vilja nýta sér apríl til fræðslu um einhverfu þá er til dæmis hægt að sýna myndbandið Frábærir hlutir gerast þar sem einhverfa er útskýrð í teiknimynd.  Hægt er að velja tungumál og texta og hentar myndbandið því einnig börnum sem eru ekki íslenskumælandi.

Helgina 11.-12. apríl standa Einhverfusamtökin fyrir listsýningu í Nýsköpunarsetrinu við Lækinn, Skólabraut 3, 220 Hafnarfirði. Þar mun einhverft listafólk sýna verk sín og flytja tónlist, ljóð o.fl. Þetta er fimmta árið í röð sem við stöndum fyrir slíkri sýningu og hefur mikil ánægja verið með framtakið. Um 300 manns mættu á sýninguna í fyrra. Þetta er gott tækifæri fyrir fólk að koma og kynna sér starfsemina, setjast niður með kaffibolla og spjalla. Opið er báða dagana frá klukkan 12 til 16.

Frítt inn og allir velkomnir.