Einhverfukaffi fyrir foreldra og aðstandendur miðvikudaginn 4. október klukkan 20:00.

Einhverfusamtökin hafa gert breytingu á foreldrastarfinu. Í vetur förum við af stað með Einhverfukaffi fyrir foreldra og aðstandendur og verður starfið í umsjón einhverfs fólks.
Fundirnir eru hugsaðir sem óformleg fræðsla um einhverfu frá einhverfu fólki.
Fundirnir verða áfram mánaðarlega, fyrsta miðvikudag í mánuði klukkan 20:00-22:00, að Háaleitisbraut 13, 108 Reykjavík, í matsal á 1. hæð.