CAT-kassinn og CAT-vef appið - námskeið

Námskeið í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi, Gerðubergi 3-5, 111 Reykjavík
föstudaginn 11. október 2019, kl. 9:00-15:30

Fræðsla um notkun CAT-kassans Myndbönd með dæmum um notkun Þjálfun í að nota gögn CAT-kassans Kynning á CAT-vef appinu

Kennarar: Ásgerður Ólafsdóttir, sérkennari og einhverfuráðgjafi og Sigrún Hjartardóttir, leikskólasérkennari og einhverfuráðgjafi

CAT-kassinn kom út í íslenskri þýðingu þeirra tveggja í júní 2005. Hægt er að panta CAT-kassann af heimasíðu CAT: www.cat-kit.com. Áskrift að CAT-appinu er í gegnum heimasíðu CAT.

Námskeiðsgjald: kr. 28.000. Afsláttur er veittur til foreldra einhverfra barna. Innifalið: Léttur hádegisverður, kaffi og meðlæti, námskeiðgögn.

Skráning: asgol@icloud.com eða sighjart@ismennt.is Við skráningu þarf að taka fram nafn, kennitölu og heimilisfang greiðanda. Einnig er gagnlegt að þátttakendur taki fram hvar þeir starfa. Skráning þarf að fara fram sem fyrst, í siðasta lagi viku fyrir námskeið. Greiðsluseðlar verða sendir nokkrum dögum fyrir námskeiðið.