CAT-kassinn og CAT-vefappið
Námskeið í KRÍUNESI við Elliðavatn
föstudaginn 17. apríl 2026, kl. 9:00-15:30
sjá: https://kriunes.is/is/stadsetning/
Fræðsla um notkun CAT-kassans með áherslu á útgáfuna frá 2023.
Myndbönd með dæmum um notkun.
Æfing í að nota gögn CAT-kassans.
Kynning á CAT-vef appinu og æfing í notkun þess.
Kennarar:
Ásgerður Ólafsdóttir, sérkennari og einhverfuráðgjafi og
Sigrún Hjartardóttir, leikskólasérkennari og einhverfuráðgjafi
CAT-kassinn kom upphaflega út í íslenskri þýðingu þeirra tveggja í júní 2005. Haustið 2022
þýddu þær svo nýja útgáfu af CAT-kassanum sem kom út í ársbyrjun 2023. Nýja CAT-kassann er
hægt að panta með því að senda tölvupóst á netfangið sales@cat-kit.com. Þýðendur veita nánari
upplýsingar.
Áskrift að CAT-vefappinu er hægt að panta með því að senda tölvupóst á sales@cat-kit.com
Námskeiðsgjald: kr.36.000
Innifalið: Hádegisverður, kaffi og meðlæti, námskeiðsgögn.
Þá fá þátttakendur frían aðgang að CAT-vefappinu í þrjá mánuði.
Skráning: asgol@icloud.com eða sighjart52@gmail.com
Við skráningu þarf að taka fram nafn, kennitölu, netfang og heimilisfang greiðanda. Einnig er
gagnlegt að þátttakendur taki fram hvar þeir starfa. Þátttakendur þurfa að hafa meðferðis fartölvu
eða spjaldtölvu til að prófa appið. Skráning þarf að fara fram sem fyrst, í siðasta lagi viku fyrir
námskeið. Greiðsluseðlar verða sendir í heimabanka fyrir námskeiðið.