Aðalfundur Umsjónarfélags einhverfra

Aðalfundur
Umsjónarfélags einhverfra
 
verður haldinn þriðjudaginn 30. apríl 2013, klukkan 20:00.
 
Fundarstaður:  Háaleitisbraut 13, salur á 4. hæð.
 
Fundarefni:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Tillögur að lagabreytingum.
Önnur mál.
 
Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna og kynna sér starfsemi félagsins, taka sameiginlegar ákvarðanir um þau málefni, sem eru framundan hjá félaginu. Það þarf sífellt að vera vakandi vegna velferðarmála einhverfra, og því áríðandi, að sem flestir taki þátt í félagsstarfinu. 
 
       Kær kveðja, stjórn Umsjónarfélags einhverfra.