Aðalfundur Einhverfusamtakanna 27. apríl 2026

Aðalfundur Einhverfusamtakanna verður haldinn mánudaginn 27. apríl 2026, klukkan 20:00.

Fundarstaður: Háaleitisbraut 13, matsalur á 1. hæð til vinstri.
Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt 7. grein samþykkta Einhverfusamtakanna fta. Engar tillögur að breytingum á samþykktum hafa borist svo þeim lið er sleppt.

a)      Kosning fundarstjóra og fundarritara.

b)      Skýrsla stjórnar um störf félagsins á starfsárinu sem er að ljúka.

c)      Ársreikningur síðastliðins árs lagður fram og borinn upp til samþykktar.

d)      Breytingar á samþykktum félagsins, ef við á.

e)      Afgreiðsla á tillögu um slit félagsins, ef við á.

f)       Ákvörðun félagsgjalds fyrir næsta starfsár.

g)      Kjör stjórnar.

h)      Kjör skoðunarmanna ársreikninga.

i)       Önnur mál.

Hér er hlekkur á samþykktir Einhverfusamtakanna fta.

Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna og kynna sér starfsemi samtakanna, taka sameiginlegar ákvarðanir um þau málefni sem framundan eru hjá samtökunum. Það þarf sífellt að vera vakandi vegna málefna einhverfra, og því áríðandi að sem flestir taki þátt í félagsstarfinu.


  Kær kveðja, stjórn Einhverfusamtakanna.