Næsti handavinnuhittingur Einhverfusamtakanna mun fara fram á Marglitum Mars í Nýsköpunarsetrinu við Lækinn í Hafnarfirði. Kaffistofa Nýsköpunarsetursins (Bollinn) verður opinn þeim sem langar til að koma og vinna að eigin handavinnu og kíkja á Marglitan Mars í leiðinni.
Bollinn verður opinn bæði laugardag og sunnudag, 11. og 12. apríl, frá klukkan 12-16. Hann er staðsettur á fyrstu hæð hússins og til vinstri inn ganginn þegar komið er inn um aðalinngang.
Athugið að mikið af fólki sækir Marglitan Mars og því er sniðugt að taka með sér heyrnartól, eyrnatappa og/eða annað sem hlífir skynfærunum.
Hlökkum til að sjá ykkur og börn eru velkomin í fylgd með fullorðnum.