Undanfarin ár hafa Einhverfusamtökin veitt viðurkenningar í apríl fyrir vel unnin störf í þágu samtakanna eða einhverfra. Árið 2015 var tækifærið notað þegar að eftirlíking Titanic var afhjúpað í Hagkaup í Smáralind þann 24. apríl. Viðurkenningar hlutu þá; Alexander Birgir Björnsson, einhverfur strákur sem ákvað að standa fyrir tónleikum til styrktar Einhverfusamtökunum og Birtu. Með aðstoð fjölskyldu sinnar, vina og ættingja fyllti hann Grindarvíkurkirkju. Þá safnaðist á aðra milljón króna á þessum frábæru tónleikum. Brynjar Karl Birgisson, einhverfur strákur sem lét draum sinn rætast með því að byggja stærsta legoskip sem byggt hefur verið, eftirlíkingu af Titanic. Hefur hann með þessu verkefni sínu komið einhverfunni í fjölmiðla á jákvæðan hátt. Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins sendi frá sér bókina Litróf Einhverfunnar og er hún samin af starfsmönnum stofnunarinnar. Í bókinni er fjallað greiningu, orsakir og ýmislegt annað tengt einhverfu. Einnig er fjallað um sögu einhverfu á Íslandi.